Hríð, skafrenningur og blinda í dag

Halldór Sveinbjörnsson

Vonskuveður er á fjallvegum um norðanvert landið en þar er spáð hríð, skafrenningi og blindu meira og minna í allan dag en skánar heldur í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Rofar til austanlands um miðjan dag en versnar aftur síðdegis. Á sunnanverðu Snæfellsnesi er reiknað með hviðum 30-40 m/s fram yfir miðjan dag.

Snjóað hefur víða á landinu í nótt og er verið að kanna aðstæður, fjallvegir eru víða ófærir á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum en mokstur hafinn á flestum leiðum.

Vegir eru mikið til auðir á Suður- og Suðvesturlandi en þó eru hálkublettir á Hellisheiði, Mosfellsheiði og Bláfjallavegi.

Hálka eða hálkublettir eru nokkuð víða á Vesturlandi, einkum á fjallvegum. Snjóþekja og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á flestum leiðum á Snæfellsnesi og óveður við Hraunsmúla. Hálka og éljagangur er á Vatnaleiði. Ófært er um Fróðárheiði og þæfingsfærð og skafrenningur í Svínadal.

Á Vestfjörðum er ófært á Þröskuldum og Klettshálsi, einnig frá Brjánslæk að Klettshálsi. Þungfært og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði. Þæfingsfærð og óveður er á Gemlufallsheiði. Þæfingsfærð er á Kleifaheiði, Hjallhálsi, í Ísafjarðardjúpi, á Flateyrarvegi og í Súgandafirði. Hálka eða snjóþekja og skafrenningur er á öðrum leiðum.

Hálka er á Norðvesturlandi. Ófært er á Þverárfjalli. Siglufjarðarvegur er lokaður vegna snjóflóðs í Mánárskriðum og verður skoðað þegar líður á morguninn með mokstur. Þungfært er í Héðinsfirði.

Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum og víða éljagangur. Snjóþekja og skafrenningur er á Víkurskarði. Ófært er á Öxnadalsheiði, Mývatnsöræfum, á Vopnafjarðarheiði og á Möðrudalsöræfum.

Snjóþekja eða hálka er á vegum á Austurlandi. Ófært er á Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra. Hálkublettir eru frá Streiti og að Djúpavogi en greiðfært þaðan og áfram með suðurströndinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert