Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Sterna og rútufyrirtækisins Bílar og fólk, segir Strætó nú vera í samkeppni um ferðamenn.
Í kynningu straeto.is á ensku fyrir ferðamenn sé auglýst hringferð um Snæfellsnes á vegum verktaka. Segir Kjartan þetta skekkja mjög samkeppni, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.