Fíkniefnabrot sem felast í vörslu og meðferð fíkniefna eru stærsti hluti þeirra fíkniefnabrota sem skráð eru hjá lögreglu á Íslandi. Síðustu sex ár hefur hlutfall þessara brota verið að meðaltali 70% allra skráðra fíkniefnabrota á landsvísu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er aðaláherslan lögð á að stöðva innflutning, framleiðslu og sölu á fíkniefnum en ekki á að nappa neytendur. Þeir slæðist hins vegar oft með, t.d. þegar þeir eru stöðvaðir við akstur undir áhrifum fíkniefna og með fíkniefni á sér.
Lögregla er oft með sérstakan viðbúnað á stórhátíðum og tónleikum og leitar þar fíkniefna með hjálp fíkniefnaleitarhunda. Lögregla hefur sagt að viðbúnaðurinn sé til að stöðva þá sem vilja nýta sér stórviðburði til að dreifa og selja efnum. Þeir sem aðeins eru með neysluskammta á sér lendi þó oft í netinu. Þá verður að hafa í huga að mikil brögð eru að því að þeir sem teknir eru með fíkniefni beri því við að þau séu einungis til vörslu en ekki til sölu, jafnvel þótt lögreglu þyki „neysuskammturinn“ fullríflegur.
Viðurlög við vörslu fíkniefna eru sekt og málið fer aðeins fyrir dóm ef viðkomandi neitar sök. Þá getur málinu lokið með því að honum verði gert með dómi að greiða sekt.
Dómur eða viðurlagaákvörðun fyrir vörslu fíkniefna fer inn á sakaskrá. Hafi málinu hins vegar ekki lokið með fangelsisdómi, heldur sekt, er það ekki tilgreint á sakavottorði ef meira en þrjú ár eru liðin frá brotinu. Máli vegna vörslubrots sem lýkur í dag sést því ekki á sakavottorði sem er framvísað 19. febrúar 2017, t.d. vegna umsóknar um starf. Í sumum tilvikum er gerð krafa um hreint sakavottorð en í öðrum tilvikum er það mat vinnuveitanda hvort varsla á fíkniefnum ráði úrslitum við ákvörðun um ráðningu um starf.
Ríkissaksóknari gefur út fyrirmæli til lögreglustjóra um ýmislegt, m.a. um hvaða málum megi ljúka með sátt, þ.e. sekt.
Kveðið er á um lágmarkssekt – 30.000 fyrir vörslu á kannabis upp í 45.000 fyrir e-töflur og kókaín – og síðan hækkar sektarfjárhæðin eftir því sem magnið er meira. Fyrir hvert gramm eða hluta af grammi af kannabis bætast 4.000 kr. við sektina en fyrir hvert gramm af kókaíni bætast við 25.000 krónur. Þegar um „nokkurt magn“ er að ræða ber lögreglu að aðgæta hvort ekki sé líklegt að það hafi verið ætlað til sölu.
Samhliða umræðu um að aflétta eigi refsingum sé einnig rætt um að efla fíkniefnameðferð. „Og það væri mjög til góða, sérstaklega fyrir unga neytendur.“ Sum fíkniefni hafi eitt sinn verið notuð í lækningaskyni og ekki talin hættuleg. Annað hafi komið í ljós. „Fíkniefni eru alls ekki hættulaus og menn verða að fara varlega í umræðunni og vanda sig.“