Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun dagana 5.-8. mars nk. heimsækja Albertafylki í Kanada í tengslum við fyrsta flug Icelandair til Edmonton, höfuðborgar fylkisins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Forsætisráðherra mun meðal annars eiga fundi með Alison Redford, forsætisráðherra Albertafylkis, og Don Iveson, borgarstjóra Edmonton. Þá mun ráðherra heimsækja þing Albertafylkis og ávarpa viðskiptaráð og efnahagsráð Edmonton, en með forsætisráðherra í för verður viðskiptasendinefnd frá Íslandi. Þá mun forsætisráðherra kynna sér olíuiðnaðinn í Albertafylki og hitta fyrir Vestur Íslendinga, en fjölmargir Kanadamenn af íslenskum uppruna búa í Edmonton og Alberta.
Vinnuheimsókn forsætisráðherra lýkur á laugardaginn.