Umferðarljós óvirk við fjölfarin gatnamót

Nokkuð umferðaröngþveiti skapaðist er ljósin urðu óvirk í dag.
Nokkuð umferðaröngþveiti skapaðist er ljósin urðu óvirk í dag. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Umferðarljós við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar í Reykjavík eru óvirk en unnið er að viðgerð. Töluverð hætta getur skapast við slíkar aðstæður en umrædd gatnamót eru á meðal þeirra fjölförnustu á landinu. 

Fréttamaður mbl.is tók eftir að ljósin voru óvirk um kl. 13:30 þegar hann átti þar leið um. Þá var engin umferðarstýring hafin.

Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg er unnið að viðgerð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert