„Alltaf sama djöfulsins ruglið í löggunum“

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Veðrið sem gengur nú yfir landið ætti ekki að hafa farið framhjá landsmönnum, að minnsta kosti þeim sem ætla sér út í veðrið. Loka hefur þurft vegum yfir Hellisheiði, Lyngdalsheiði og Mosfellsheiði, svo dæmi sé tekið, vegna ófærðar.

Lögreglan á Selfossi fékk heldur óskemmtilegt símtal í dag frá vegfaranda sem var ósáttur við lokunina á Hellisheiði.

Símtal vegfaranda við lögreglu á Selfossi

Vegfarandi: „Ég er hérna á veginum við Hveragerði og það er hlið fyrir veginum“

Lögregla: „Það passar. Hellisheiði er lokuð vegna ófærðar.“

Vegfarandi: „Ég þarf nauðsynlega að komast til Reykjavíkur og hvað á ég að gera“

Lögregla: „Þrengslin eru enn opin. Þú getur komist þar í gegn, að minnsta kosti ennþá.“

Vegfarandi: „Þá verð ég of seinn og hvað ætlar þú að gera í því.“

Lögregla: „Ekkert. Ég geri ekkert í því.“

Vegfarandi: „Þið getið ekki bara lokað veginum svona án þess að láta fólk vita með góðum fyrirvara. Ég hefði lagt af stað fyrir hádegi ef ég hefði vitað að það ætti að loka.“

Lögregla: „Því miður stjórna ég ekki veðrinu, en það var nú búið að vara við þessu veðri.“

Vegfarandi: „Ég hef engan tíma til að vera stöðugt að fylgjast með veðrinu. Ég bara treysti því að þið getið haldið vegum landsins opnum.“

Lögregla: „Ég myndi sjálfur gjarnan vilja hafa tæki og vald til þess en svona fer þetta stundum.“

Vegfarandi: „... og hver á að endurgreiða mér bíómiðana sem ég keypti? Alltaf sama djöfulsins ruglið í ykkur löggunum,“ sagði hann og skellti á.

Frétt mbl.is: Mikið að gera hjá björgunarsveitum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert