Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur samþykkt að leita leiða til að hefja megi gjaldtöku í sveitarfélaginu. Settur verður á laggirnar starfshópur sem mun hefja viðræður við aðra landeigendur í sveitarfélaginu og sveitarfélögin í Kötlu jarðvangi.
Þetta kemur fram í tillögu sem sveitarstjórnin samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag. Fram kemur í tilkynningu, að umræður um gjaldtökumál á ferðaþjónustustöðum hafi farið fram á fundinum. Sveinn Kristján Rúnarsson, fulltrúi í nefnd um gjaldtöku á ferðamannastöðum, mætti á fundinn, veitti upplýsingar og tók þátt í umræðunum ásamt Steingerði Hreinsdóttur, framkvæmdastjóra Kötlu jarðvangs, og Sigurði Sigursveinssyni, framkvæmdastjóra Háskólafélags Suðurlands.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra sameinast um eftirfarandi tillögu sem samþykkt var samhljóða:
„Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir að leita leiða til að hefja megi gjaldtöku á í sveitarfélaginu. Settur verði á laggirnar starfshópur sem hefji viðræður við aðra landeigendur í sveitarfélaginu og sveitarfélögin í Kötlu jarðvangi.
Hópinn skipi þrír fulltrúar; einn frá hverjum lista sem fulltrúa á í sveitarstjórn, sveitarstjóri starfar með hópnum. Skal starfshópurinn hafa heimildir til að kveðja á fund sinn sérfræðinga eftir því sem þurfa þykir.
Hópinn skipa: Guðlaug Ósk Svansdóttir, Kristín Þórðardóttir og Guðmundur Ólafsson.“