Lögbannsmáli skotið til dómstóla

Ríkissjóður Íslands hyggst ekki una niðurstöðu sýslumannsins á Selfossi sem hafnaði kröfu um lögbann við innheimtu gjalds af ferðamönnum við Geysi. Fram kemur í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu að ríkissjóður hafi tilkynnt sýslumanni að málinu verði skotið til dómstóla. Greinargerð í þeim efnum ásamt gögnum verður afhent héraðsdómi Suðurlands í dag. 

„Sameigendur ríkisins að svæði við Geysi hafa haft fyrirætlanir um gjaldtöku af ferðamönnum sem fara um það. Fjármála- og efnahagsráðherra fór fram á það við sýslumann að lögbann yrði sett við áformunum. Sýslumaður hafnaði beiðninni 12. mars sl. Eins og fram hefur komið er hluti lands innan girðingar á svæðinu séreign ríkisins samkvæmt afsali frá 1935. Innan þess eru helstu hverir svæðisins, þ.e. Geysir, Strokkur og Blesi. Landið umhverfis þessa séreign ríkisins er hins vegar í sameign ríkis og félags landeigenda. Ríkissjóður á fyrir utan séreignina u.þ.b 25% í sameignarlandinu með félaginu,“ segir í tilkynningunni.

Ennfremur kemur fram að ríkissjóður hafi lýst sig andsnúinn fyrirhugaðri gjaldtöku sameigenda sinna að landinu við Geysi og bent á að landeigendafélagið gæti hvorki ráðist í framkvæmdir á séreignarlandi ríkissjóðs né innheimt gjald vegna þess. Þá væri innheimta gjalds grundvallarbreyting á afnotum svæðisins og tilgangi frá því sem verið hefði og myndi takmarka afnot af sameignarlandi og séreign íslenska ríkisins.

„Sameigendum ríkisins hefur verið boðið að ríkissjóður bæri kostnað af nauðsynlegum framkvæmdum til að tryggja vernd svæðisins og til að kosta rekstur þess og gæslu á því, út árið 2015. Var þetta boðið gegn því að sameigendur féllu frá fyrirhugaðri gjaldtöku og reynt yrði í kjölfarið að ná samkomulagi um framtíðarskipan mála á svæðinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert