Lögreglu höfuðborgarsvæðisins var um klukkan tíu í morgun tilkynnt um innbrot í Breiðholtskirkju. Þegar haft var samband við kirkjuvörð kannaðist hann við að brotist hefði verið inn en neitaði að tjá sig að öðru leyti og sagði fréttaflutning af innbrotinu geta gefið öðrum sömu hugmynd.
Fékkst því ekki uppgefið hvort tjón hefði verið unnið á kirkjunni eða hvort innbrotsþjófurinn komst á brott með verðmæti. Ganga má að því sem vísu að innbrotsþjófurinn hafi ekki verið handtekinn enda ekkert um handtöku bókað hjá lögreglunni.