Forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra boða til blaðamannafundar í Iðnó klukkan 16:00 í dag.
Efni fundarins er kynning á aðgerðum ríkisstjórnarinnar til lækkunar höfuðstóls húsnæðisskulda. Ítarlega verður fjallað um fundinn á mbl.is í dag.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum eru tvískiptar, annars vegar um 80 milljarða niðurfærsla verðtryggðra íbúðalána og hins vegar 70 milljarða lækkun höfuðstóls íbúðalána með nýtingu séreignarsparnaðar. Upphaflega átti að færa verðtryggð íbúðalán niður um fjárhæð sem samsvarar verðbótum umfram 4,8% sem féllu til á tímabilinu desember 2007 til ágúst 2010. Var það sagt samsvara um 13% leiðréttingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur sú breyting orðið á aðferðinni við útreikninga niðurfærslunnar að nú er miðað við almanaksárin 2008 og 2009. Til upprifjunar var 5,8% verðbólga í janúar 2008, 18,6% verðbólga í janúar 2009 og 7,5% verðbólga í desember 2009.
Þá er það talinn kostur að ríkisskattstjóra verði falið að annast umsóknir um skuldaleiðréttingu. Þar sé á ferð miðlæg stofnun, ólíkt því þegar sækja þurfti um 110%-leiðina til einstakra fjármálastofnana.
Niðurfærsla höfuðstóls verðtryggðra lána nær til lána vegna íbúðakaupa til eigin nota, skv. reit 5.2 á skattframtali, og afmarkast niðurfærslan við tímabilið frá 1. jan. 2008 til 31. des. 2009. Miðað er við að lánin myndi stofn til vaxtabóta.
Hér er um að ræða almenna athugasemd við skattframtal og eiga umsækjendur fullan rétt á að sækja um að lán sé fært úr lið 5.5 í 5.2, að því er heimildir blaðsins herma.
Má ætla að umræddir lántakar geti óskað þess að lánið sé fært úr lið 5.5. í lið 5.2. Er hér líka um að ræða almenna athugasemd og ætti afgreiðsla hennar að jafnaði að vera auðsótt, eftir því sem Morgunblaðið kemst næst.
Upplýsingar um hversu margir tilheyri hópunum sem ofangreint á við lágu ekki fyrir í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum blaðsins er sá hópur sem fellur undir lið 5.5. mikill minnihluti af heildarfjöldanum í lið 5.2. Það séu enda mjög fáir eingöngu með íbúðalán í lið 5.5.
Áðurnefnd séreignarsparnaðarleið til íbúðarkaupa kemur til viðbótar upphaflegum tillögum.
„Séreignarsparnaðurinn getur nýst til öflunar húsnæðis á næstu fimm árum fyrir þá sem eiga ekki húsnæði í dag. Að þeir geti nýtt sér þann skattaafslátt sem séreignarsparnaðarleiðin býður upp,“ sagði Bjarni.
Eins og fram hefur komið verður skuldaniðurfellingin að hámarki 4 milljónir króna fyrir hverja fasteign. Heildarumfang aðgerðanna er áætlað um 150 milljarðar króna og segir Bjarni áætlað að kostnaður ríkissjóðs verði um 80 milljarðar af niðurfellingu verðtryggðra lána. Hlutur séreignarlífeyrissparnaðarins verði hins vegar 70 milljarðar.
Á aðgerðin að ná til um 70.000 heimila. Frumvörpin fara til umfjöllunar í þingflokkunum í dag og verða síðan lögð fyrir þingið.
Fram kom í máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra að sérstök vefgátt yrði opnuð á vefsvæði ríkisskattstjóra hinn 15. maí næstkomandi þar sem hægt verður að sækja um þessar leiðréttingar. Opið verður fyrir umsóknir í þrjá mánuði. „Þetta á að vera aðgengilegt og ekki erfitt fyrir fólk að sækja um niðurfellingu,“ sagði hann.