Markmið lagafrumvarps þriggja þingmanna, sem lagt var fyrir Alþingi í dag, er að tryggja með lagasetningu lágmarkslaun á Íslandi sem veiti öllum fullorðnum einstaklingum sem starfa á Íslandi ávallt rétt til launa sem nægja fyrir framfærslu.
Flutningsmenn frumvarpsins eru þau Lilja Rafney Magnúsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Birgitta Jónsdóttir.
Í frumvarpinu segir að tilgangurinn sé að innleiða og viðhalda þeirri tilhögun að lægstu grunnlaun á íslenskum vinnumarkaði nægi til einstaklingsframfærslu samkvæmt landsmeðaltali dæmigerðs neysluviðmiðs og að bein tengsl séu á milli lágmarkslauna og framfærslukostnaðar.
Er lagt til að Vinnumálastofnun hafi eftirlit með því að ákvæðum laganna verði fylgt og hafi í þeim tilgangi aðgang að launagreiðsluupplýsingum launagreiðenda.