Maður um tvítugt var staðinn að hraðakstri á Miklubraut í Reykjavík um helgina, en bifreið hans mældist á 128 km hraða á vegarkafla þar sem leyfður hámarkshraði er 60 km/klst. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.
Nokkuð bar annars á hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu um helgina og voru nokkrir tugir ökumanna stöðvaðir vegna þessa, en hinir sömu eiga allir sekt yfir höfði sér.