Rúmlega hundrað óku of hratt

Allnokkrir ökumenn óku of hratt á Reykjanesbraut í dag.
Allnokkrir ökumenn óku of hratt á Reykjanesbraut í dag. mbl.is/Rax

Brot 113 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í austurátt við Hlíðardalsveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 411 ökutæki þessa akstursleið og ók því rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrettán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í Hvassahrauni í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 205 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi og á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert