Dregur úr stuðningi við Sjálfstæðisflokk

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ómar

MMR kannaði fylgi stjórn­mála­flokka og stuðning við rík­is­stjórn­ina (stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæðis­flokks) á tíma­bil­inu 28. mars til 1. apríl 2014.
Stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist nú 38,7% en mæld­ist 40,9% í síðustu mæl­ingu (sem lauk þann 28. fe­brú­ar s.l.) og 46,6% um miðjan fe­brú­ar s.l. (lauk 15. fe­brú­ar).


Fylgi Sjálf­stæðis­flokks­ins mæld­ist nú 23,9%, borið sam­an við 29,0% í könn­un frá lok fe­brú­ar. Fylgi Bjartr­ar framtíðar mæld­ist nú 17,1%, borið sam­an við 16,4% í síðustu könn­un. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar mæld­ist nú 15,1%, borið sam­an við 14,0% í síðustu könn­un. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mæld­ist nú 14,4%, borið sam­an við 14,6% í síðustu könn­un. Vinstri-græn mæld­ust nú með 11,5% fylgi, borið sam­an við 10,4% í síðustu könn­un. Pírat­ar mæld­ust nú með 11,0% fylgi, borið sam­an við 9,3% fylgi í síðustu könn­un. Fylgi annarra flokka mæld­ist und­ir 2%.

Lagðar voru allt að þrjár spurn­ing­ar fyr­ir svar­end­ur um stuðning þeirra við stjórn­mála­flokka. All­ir voru spurðir spurn­ing­ar 1: „Ef kosið yrði til Alþing­is í dag, hvaða flokk mynd­ir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/​óákveðin(n)“ við spurn­ingu 1 voru því næst spurðir spurn­ing­ar 2: „En hvaða flokk­ur yrði lík­leg­ast fyr­ir val­inu?“. Ef aft­ur var svarað „Veit ekki/​óákveðin(n)“ þá voru þátt­tak­end­ur að lok­um spurðir spurn­ing­ar 3: „Hvort er lík­legra að þú kys­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn eða ein­hvern hinna flokk­anna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "ein­hvern hinna" í spurn­ingu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálf­stæðis­flokks­ins í sama hlut­falli og fylgi þeirra var skv. spurn­ing­um 1 og 2. Sam­tals voru 81,3% sem gáfu upp af­stöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,1%), myndu skila auðu (5,8%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp af­stöðu sína (3,7%). 

Spurt var: Styður þú rík­is­stjórn­ina? (stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæðis­flokks) Svar­mögu­leik­ar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/​Vil ekki svara“ Sam­tals tóku 86,3% af­stöðu til spurn­ing­ar­inn­ar.

Upp­lýs­ing­ar um fram­kvæmd:

Úrtak: Ein­stak­ling­ar 18 ára og eldri, vald­ir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR.
Álits­gjaf­ar MMR eru vald­ir úr Þjóðskrá þannig að þeir end­ur­spegli lýðfræðilega sam­setn­ingu þjóðar­inn­ar á hverj­um tíma.
Könn­un­araðferð: Spurn­inga­vagn MMR
Svar­fjöldi: 960 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri
Dag­setn­ing fram­kvæmd­ar: 28. mars til 1. apríl 2014

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka