Íbúar Eyrarinnar á Akureyri upplifa fordóma í sinn garð vegna neikvæðrar ímyndar hverfisins, sem hefur orð á sér fyrir að vera nokkurs konar gettó bæjarins. Eyrin sker sig úr öðrum hverfum bæjarins að þessu leyti.
Þetta eru niðurstöður BA ritgerðar Herdísar Helgudóttur, fjölmiðlafræðings við Háskólann á Akureyri, sem fréttavefurinn Vikudagur greinir frá. Ritgerðin ber heitið Oddeyri og ímynd þess: Hvaðan kemur ímyndin og hvar er hana að finna?
Neikvæð ímynd Eyrarinnar birtist á ýmsu vegu, m.a. í skólum og orðum fólks á götunni. Jón Einar Jóhannsson, íbúi Eyrarinnar, segist í samtali við Vikudag hafa fundið síðast fyrir þessu þegar hann var að bíða eftir leigubíl eftir árshátíð Akureyrarbæjar. Hann segir nauðsynlegt að efla ímynd bæjarins.