Á annað þúsund gestir Sundlaugar Kópavogs hafa skrifað undir mótmæli gegn hækkun á árskortum í líkamsrækt í kjölfar útboðs á líkamsræktaraðstöðunni.
Þá hefur fastagestur í sundlauginni mótmælt í bréfi til allra bæjarfulltrúa.
Fyrirtækið Gym heilsa rekur líkamsræktina í húsnæði Kópavogsbæjar í Sundlaug Kópavogs og Salalaug. Reksturinn var boðinn út á dögunum, að kröfu Samkeppniseftirlitsins. Tvö tilboð bárust, frá Gym heilsu og World Class. Tilboð síðarnefnda fyrirtækisins var talið gefa Kópavogsbæ meiri tekjur í heildina, af leigu og hlutdeild í tekjum.