Vel á annað hundrað manns gerðust stofnfélagar í landssamtökunum Spítalanum okkar á stofnfundi samtakanna sl. miðvikudag. Þar var jafnframt kjörin sjö manna stjórn með formlegum hætti, en í henni situr fólk úr ýmsum stéttum.
Líkt og fram hefur komið, var Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða kross Íslands, kjörin formaður Spítalans okkar. Hún er fyrrverandi framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala.
Auk Önnu Stefánsdóttur eru eftirtalin í nýkjörinni stjórn Spítalans okkar: Anna Elísabet Ólafsdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst, Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála og fasteignareksturs í Háskólanum í Reykjavík, Garðar Garðarsson hæstaréttarlögmaður, Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt og meistaranemi við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Bjarney Harðardóttir, rekstrarhagfræðingur og framkvæmdastjóri markaðsmála og viðskiptaþróunar hjá Sjóklæðagerðinni 66 gráðum norður og Gunnlaug Ottesen, stærðfræðingur og yfirmaður upplýsingatæknimála hjá Marel.
„Töluverður hópur manna úr ýmsum stéttum hefur að undanförnu unnið að stofnun þessara landssamtaka sem hafa þann tilgang að vinna að nýbyggingu og endurnýjun Landspítala þannig að húsakostur og umhverfi sjúklinga og aðstaða starfsfólks spítalans þjóni nútíma þörfum. Markmið félagsins er að afla stuðnings meðal almennings og stjórnvalda við nauðsynlegar úrbætur á húsakosti spítalans þannig að þjóðin sé upplýst um þarfir fyrir aðstöðu til þjónustu á Landspítala, hvaða áætlanir liggi fyrir um endurnýjun og viðbætur við húsnæði spítalans og að fyrir liggi valkostir í fjármögnun og framkvæmd verkefnisins. Félagið er öllum opið. Vel á annað hundrað manns gerðust stofnfélagar í Spítalanum okkar á stofnfundinum,“ segir í tilkynningu.