Jarðvegseyðing er talið alvarlegasta umhverfisvandamál á Íslandi. Nálægt 40% af landinu eru örfoka.
Með óbreyttri stefnu í landgræðslu mun það taka 100 til 150 ár að endurheimta fyrri landgæði, segir sviðsstjóri hjá Landgræðslunni í samtali um stöðuna og horfur í landgræðslumálum í Morgunblaðinu í dag.