Um helmingur viðskipta í kauphöllum í Bandaríkjunum er á vegum forrita sem taka sjálfstæðar ákvarðanir á augabragði.
Þetta segir Jim McTague, fréttastjóri hjá bandaríska fjármálablaðinu Barron's, í samtali í Morgunblaðinu í dag.
„Gervigreind ræður ríkjum á bandarískum fjármálamörkuðum,“ segir hann í samtalinu.