Í dag byrjaði Ghasem Mohamadi að borða á ný eftir að hafa fengið loforð um fund með innanríkisráðuneytinu í næstu viku. Samkvæmt tilmælum læknis byrjar hann rólega og fékk sér súpu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum Ghasem.
Ghasem er tvítugur Afgani sem hefur verið á Íslandi í tvö ár án þess að mál hans fái meðferð hér. Undanfarna 9 daga hefur Ghasem hvorki borðað né drukkið, í von um að vekja athygli á máli sínu.
„Við gleðjumst að sjálfsögðu innilega yfir því og vonum að ráðuneytið bregðist ekki þeirri von sem hefur verið vakin. Það hefur verið Ghasem þungbært að horfa upp á aðgerðaleysi yfirvalda og við vonum að íhlutun þeirra nú verði honum til góðs,“ segir í tilkynningunni.
Frétt mbl.is: Tæplega 900 sýndu Ghasem stuðning.
Frétt mbl.is: Krefst ekki hælis heldur áheyrnar.