Brot 18 ökumanna voru mynduð á Austurbrún í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurbrún í suðurátt, á milli Dragavegar og Hólsvegar.
Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.
Vöktun lögreglunnar á Austurbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu