Bardagakappinn Gunnar Nelson vann alla ellefu bardaga sína á sviði Eldborgar í Hörpu í kvöld. Ellefu bardagamenn lögðu til atlögu við Gunnar, en liðið var meðal annars skipað þeim Pétri Eyþórssyni, glímukóngi Íslands, og Vigni Grétari Stefánssyni, margföldum Íslandsmeistara í júdó.
Viðburðurinn er hluti af fanfesti EVE sem fram fer í Hörpu þessa dagana.
mbl.is hitti Gunnar og andstæðingana í Mjölni í vikunni.