Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur stefnt fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins og krefst þess að fá endurgreitt sérstakt veiðigjald sem lagt var á sjávarútvegsfyrirtæki á fiskveiðiárinu 2012-2013 með lögum nr. 74/2012, alls um 516 milljónir króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Vinnslustöðin unir álagningu almenns veiðigjalds á sama fiskveiðiári. Það nam tæpum 200 milljónum króna. Málssóknin tekur því einungis til sérstaka veiðigjaldsins.
Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður flytur málið fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar og hefur stefnan þegar verið birt ríkislögmanni fyrir hönd fjármálaráðherra. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 27. maí.
Í tilkynningunni segir að krafist sé endurgreiðslu á þeirri forsendu að álagning sérstaka veiðigjaldsins stangist á við ófrávíkjanleg ákvæði í stjórnarskrá Íslands. Fyrir því eru færðar margvíslegar röksemdir í stefnunni:
Vinnslustöðin telur að sérstaka veiðigjaldið sé í reynd eignarskattur sem lagður er á veiðiheimildir sem varðar eru af eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Gjaldstofninn, svokölluð renta, sé hins vegar ekki tengdur ætluðu verðmæti veiðiheimildanna, heldur sé gjaldið fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 reiknað út frá rekstrarniðurstöðum ársins 2010. Þetta þýði í raun að verið sé að skattleggja rekstur fyrirtækisins afturvirkt, sem er óheimilt samkvæmt 77. grein stjórnarskrárinnar.
Vinnslustöðin telur einnig að mjög veruleg mismunun sé innbyggð í regluverkið. Það birtist í því að fjölmargir eigendur veiðiheimilda þurfa ekki að greiða gjaldið en hinir verða í staðinn að greiða þeim mun meira.
Með sérstöku veiðigjaldi er mjög hátt hlutfall af rekstrarafkomu Vinnslustöðvarinnar flutt í ríkissjóð, segir í tilkynningunni. „Engu er skeytt um áhrif þess á rekstur fyrirtækisins, fjárfestingargetu þess o.s.frv. Skatthlutfallið er svo hátt að það felur í reynd í sér upptöku eigna, sem fer í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar að mati fyrirtækisins.“