Verið er að leggja lokahönd á ráðningu sumarstarfsfólks á Seltjarnarnesi. Seltjarnarnesbær er, samkvæmt upplýsingum frá sveitarfélaginu, eina bæjarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem býður öllum námsmönnum, sem lokið hafa 8. bekk og eru með lögheimili í bæjarfélaginu, sumarvinnu.
Nú þegar búið er að loka fyrir umsóknir er ljóst að auk grunnskólanemana í 8., 9. og 10. bekkjum fá um 200 námsmenn 17 ára og eldri sumarstarf hjá bænum, en umsóknum fjölgaði til muna frá árinu áður, samkvæmt fréttatilkynningu frá Seltjarnarnesbæ.
„Framtak bæjarins gagnvart sumarvinnu námsmanna er ekki nýtt af nálinni en í kjölfar kreppunnar þegar ljóst var að námsmenn færu á mis við almenn störf, sem þeim höfðu staðið til boða, ákvað Seltjarnarnesbær að venda sínu kvæði í kross og bjóða öllum nemum eftir 8. bekk sumarstarf. Þetta frumkvæði bæjarins mæltist afar vel fyrir og er því enn við lýði,“ segir í fréttatilkynningu.
Annars vegar er um að ræða Vinnuskóla fyrir nemendur í 8. og 9. bekkjum (fædda 1999 og 2000) sem fá vinnu 3,5 tíma á dag fjóra daga vikunnar yfir 7 vikna tímabil. Einnig vinnuskóla fyrir nema í 10. bekk (fædda 1998) sem fá vinnu 7 stundir á dag 4 daga vikunnar. Ekki er unnið á föstudögum, en starfstímabil Vinnuskólans nær frá 10. júní til 25. júlí. Umsóknarfrestur fyrir Vinnuskólann er 1. maí 2014, en hann verður settur 10. júní í Valhúsaskóla.
Hins vegar er um að ræða sumarstörf fyrir nemendur 17 ára og eldri (fædda frá 1997), en þar er um að ræða almenn garðyrkjustörf, verkamannastörf, skapandi sumarstörf og ýmis afleysingastörf. Einnig er ungmennum 20 ára og eldri (fæddum frá 1996) boðin störf sem flokkstjórar og leiðbeinendur vegna ævintýra- og leikjanámskeiða og smíðavallar.