Skilar auðu gagnvart þeim verst settu

mbl.is/Ómar

Alþýðusamband Íslands segir að verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála, sem skilaði skýrslu sinni í gær, skili auðu þegar kemur að lausnum á vanda þeirra tekjulægstu í samfélaginu. Það sé aftur á móti jákvætt að hún leggi til að hér verði tekið upp nýtt húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd.

Fram kemur að gætt sé betra jafnræðis milli lántakenda og fjárfesta í lánaflokkum sem í ríkara mæli byggja á föstum óverðtryggðum vöxtum í nýju kerfi.

„Jafnframt leggur verkefnisstjórnin til að staðinn verði vörður um framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs í nýja lánakerfinu. Hann verði ein af þeim húsnæðislánastofnunum sem hér starfi á lánamarkaði og verði áfram í eigu ríkisins. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, fagnar þessari niðurstöðu enda er með þessu að flestu leiti tekið undir tillögur ASÍ varðandi húsnæðislánakerfið sem kynntar voru fyrir rúmu ári síðan,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.

Þar segir ennfremur, að þegar komi að umfjöllun um þarfir og vanda þeirra tekjulægstu í samfélaginu, og sýnilega séu í mestum húsnæðisvanda, sé ljóst að verkefnisstjórnin skili auðu. Þetta telur Gylfi vera algerlega óforsvaranlegt.

„Engar tillögur er að finna um það með hvaða hætti stjórnvöld ætli að koma til móts við gríðarlegan vanda þessa fólks sem þarf að nota allt að helming tekna sinna til að borga fyrir húsnæði. Skýtur þetta nokkur skökku við í ljósi þess að ASÍ setti nýlega fram ítarlegar og útfærðar tillögur að nýju félagslegu húsnæðisleigukerfi, sem skilað gæti þeim árangri að tryggja tekjulægstu þjóðfélagshópunum aðgang að húsnæði á viðráðanlegum kjörum,“ segir í tilkynningu ASÍ. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert