Icelandair hefur fellt niður 26 flugferðir félagsins á morgun, föstudag 9. maí, vegna verkfalls Félags íslenskra atvinnuflugmanna, sem stendur frá kl. 06.00 til kl 18.00.
Ákvörðun um að fella niður ferðirnar með þessum fyrirvara er tekin til þess að eyða óvissu og gefa farþegum tækifæri á því að gera nauðsynlegar ráðstafanir. Í heild eru um 4.500 farþegar, mest erlendir ferðamenn, bókaðir í ær 26 ferðir sem um er að ræða og er upplýsingum komið til þeirra um stöðuna m.a. með textaskilaboðum og tölvupósti. Mikið álag er á þjónustuveri félagsins, segir í tilkynningu frá Icelandair.
„Þó svo viðræður standi yfir hjá sáttasemjara þá komumst við ekki hjá því að grípa til þessara ráðstafana nú til að koma í veg fyrir það öngþveiti sem skapast mun á morgun verði ekki af samningum. Við biðjum viðskiptavini félagsins velvirðingar á þeirri miklu röskun sem verkfallið veldur og gerum allt sem í okkar valdi stendur þeim til aðstoðar,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í tilkynningu.
Veldur vonbrigðum að flugmenn hafi ekki fallist á þær launahækkanir sem aðrir þáðu
Verkfall flugmanna veldur Icelandair miklum vonbrigðum, enda standa þeim til boða sambærilegar launahækkanir og aðrir í samfélaginu hafa samið um að undanförnu, þar á meðal meirihluti starfsmanna Icelandair Group, samkvæmt fréttatilkynningu sem Icelandair var að senda frá sér.
„Icelandair mun eftir fremsta megni reyna að leysa úr þeim vanda sem niðurfelling flugsins skapar viðskiptavinum m.a. með því að flytja þá yfir á flug annarra flugfélaga eins og hægt er, einnig að færa farþega á annað flug Icelandair til og frá þessum áfangastöðum ef það er unnt eða breyta farmiðum með öðrum hætti. Þeir sem hætta við ferð sína munu fá endurgreitt. Nánari upplýsingar eru á Icelandair.is,“ segir í tilkynningu.
Þær ferðir sem felldar verða niður föstudaginn 9. maí eru eftirfarandi: (staðartímar)
Flug 204 |
07:45 Keflavík-Kaupmannahöfn |
205 |
14.00 Kaupmannahöfn- Keflavík |
318 |
07:50 Keflavík- Osló |
319 |
14:45 Osló – Keflavík |
306 |
07:35 Keflavík – Stokkhólmur |
307 |
14:20 Stokkhólmur – Keflavík |
342 |
07:30 Keflavík – Helsinki |
343 |
15:30 Helsinki – Keflavík |
272 |
08:00 Keflavík – Billund |
273 |
14:40 Billund – Keflavík |
430 |
07:35 Keflavík – Glasgow |
431 |
14:05 Glasgow – Keflavík |
440 |
08:00 Keflavík – Manchester |
441 |
13:25 Manchester – Keflavík |
450 |
07:40 Keflavík – London Heathrow |
451 |
13.00 London Heathrow – Keflavík |
470 |
07:45 Keflavík – London Gatwick |
471 |
13:10 London Gatwick – Keflavík |
542 |
07:40 Keflavík – París |
543 |
14:10 París – Keflavík |
520 |
07:25 Keflavík – Frankfurt |
521 |
14:00 Frankfurt – Keflavík |
502 |
07:70 Keflavík – Amsterdam |
503 |
14:00 Amsterdam – Keflavík |
454 |
16:10 Keflavík – London Heathrow |
455 |
21:10 London Heathrow – Keflavík |
Auk þessa verður 2-5 klukkustunda seinkun á síðdegisflugi til Kaupmannahafnar (FI212), Osló, Denver, Seattle, Orlando, Edmonton, Toronto, Boston og New York. Brottför þessara flugferða er áætluð um kl 19:30 og innritun hefst síðdegis.