Frumvarp um frestun verkfallsaðgerða flugmanna hjá Icelandair urðu að lögum á Alþingi nú rétt í þessu. 32 þingmenn sögðu já, 14 sögðu nei, 6 greiddu ekki atkvæði og 11 voru fjarverandi.
Samkvæmt lögunum verða verkfallsaðgerðir sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna hóf gegn Icelandair 9. maí óheimilar, frá gildistöku laganna. Deiluaðilum verður heimilt að semja um kjaramál, en óheimilt verður að knýja fram kjarabætur með vinnustöðvun.
Hafi deiluaðilar ekki náð samkomulagi þann 1. júní skal gerðardómur grípa inn í og ákveða kaup og kjör flugmanna Icelandair fyrir 1. júlí nk. Ákvarðanir gerðardóms verða bindandi sem kjarasamningur.
Í athugasemdum við frumvarpið segir að ljóst sé og ótvírætt að gríðarlegir samfélagslegir og efnahagslegir hagsmunir séu í húfi. Verkfallsaðgerðirnar nái til 300 flugmanna Icelandair, hafi áhrif á um 600 flug til og frá landinu og 100.000 farþega félagsins þá 9 daga sem tímabundin vinnustöðvun nær til.
Áætlað tekjutap á hverjum degi verkfallsaðgerða nemi um 900 milljónum króna. Eru þar lagðar saman gjaldeyristekjur ferðaþjónustunnar og beinar skatttekjur hennar, miðað við uppreiknaðar tölur frá maí og júní 2013. Hlutdeild Icelandair í flugi til og frá landinu á þessu tímabili er rúmlega 70%.
„Ferðaþjónustan og afleiddar atvinnugreinar eiga því hér mikið undir,“ segir í athugasemdum við frumvarpið. Verkfallsaðgerðirnar hafi nú þegar skapað mikla óvissu í ferðaþjónustunni, sem sé viðkvæm atvinnugrein sem megi við litlum áföllum.
„Eftir því sem röskun á fluginu eykst verður greinin fyrir meiri skaða. Söluaðilar erlendis fylgjast grannt með stöðu mála þar sem þeir íhuga að aflýsa ferðum til landsins vegna þessarar óvissu. Áhrifa þessara verkfallsaðgerða kann því að gæta langt fram í tímann,“ segir í athugasemdum við frumvarpið.