Það verður engin kennsla í grunnskólum landsins í dag en fundi í kjaradeilu félags grunnskóla og sveitarfélaganna var að ljúka. Nýr fundur hefur verið boðaður klukkan 15, að sögn ríkissáttasemjara, Magnúsar Péturssonar.
Að sögn Ólafs Loftssonar, formanns Félags grunnskólakennara, er góður gangur í viðræðunum en ákveðið var að slíta fundi nú á sjötta tímanum enda ljóst að ekki næðist að semja áður en kennsla ætti að hefjast í grunnskólum landsins.
„Þetta þokast vel áfram og við erum búin að ljúka mörgum stórum málum en það á eftir að klára launaliðinn og það er það sem stendur útaf í augnablikinu. Við erum búin að sitja á fundi síðan á hádegi í gær og ljóst að við náum ekki að ljúka þessu áður en skólastarf hefst í dag,“ segir Ólafur en hann var staddur í húsnæði ríkissáttasemjara þegar mbl.is náði tali að honum skömmu fyrir klukkan sex í morgun.
Ólafur segir að ljóst hafi verið að ekki yrði lengra komist í þessari fundarlotu en samninganefndirnar hafa setið á fundi í tæpar átján klukkustundir.
Félag grunnskólakennara hefur boðað vinnustöðvun dagana, 15., 21. og 27. maí hafi samningar ekki tekist.
Hverjir taka þátt í vinnustöðvun?
- Allir grunnskólakennarar, leiðbeinendur, náms- og starfsráðgjafar og aðrir þeir sem þiggja laun frá sveitarfélögum samkvæmt kjarasamningi KÍ/FG við sveitarfélög.
Hverjir taka ekki þátt í vinnustöðvun?
- Skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar sem þiggja laun samkvæmt kjarasamningi KÍ/SÍ.
- Starfsmenn skóla sem ekki sinna kennslu og ekki eru félagar í KÍ.
- Vakin er athygli á 2. mgr. í 18. grein laga nr. 94/1986 þar sem segir: „Þegar verkfall er löglega hafið er þeim sem það beinist gegn óheimilt að stuðla að því að afstýra því með aðstoð einstakra félagsmanna þess félags sem að verkfallinu stendur.“
- Störf og verk sem hafa verið á könnu félagsmanna í FG falla niður í verkfalli og öðrum starfsmönnum er óheimilt að ganga í þau.
Viðvera
- Kennarar eiga ekki að vera við störf né nokkuð annað í skólahúsnæði meðan á vinnustöðvun stendur. Sama á við um allt rafrænt umhverfi skólanna, námsnet, samfélagsmiðla, tölvupóst og þess háttar.
Náms- og kennsluvefir
- Öll vinna félagsmanna FG við náms- og kennsluvefi er óheimil á meðan á vinnustöðvun stendur. Efni sem tilheyrir vinnustöðvunardögum skal ekki birtast nemendum.
Notkun tölvupósts stofnana
- Öll kennslu- og starfstengd notkun tölvupósts er óheimil meðan á vinnustöðvun stendur.
Félagsstörf nemenda
- Félagsstarfsemi sem fer fram með umsjón félagsmanna FG fellur niður í vinnustöðvun.
Ferðir með nemendum
- Dagsferðir nemenda í fylgd félagsmanna FG sem skipulagðar eru á vinnustöðvunardögum falla niður.
Staðgenglar
- Stjórnendum er óheimilt að kalla til staðgengla fyrir sig þótt þeir forfallist meðan á vinnustöðvun stendur enda staðgenglar þeirra ekki að störfum.
Skólahúsnæði
- Allt húsnæði, þar sem umsjónar og ábyrgðar félagsmanna FG er krafist, skal vera óaðgengilegt nemendum meðan á vinnustöðvun stendur.
Fjarkennsla/dreifkennsla
- Öll fjarkennsla/dreifkennsla á vegum skóla og í umsjón eða á ábyrgð félagsmanna FG, sem lagt hafa niður vinnu, fellur niður.
Breytingar á stundatöflu og verksviði
- Óheimilt er með öllu að færa til stundatöflur eða breyta vinnuskipulagi þeirra starfsmanna skóla sem ekki leggja niður störf.
Námskeið á vegum skóla
- Allt námskeiðahald á vegum skóla í umsjón eða á ábyrgð félagsmanna FG, sem lagt hafa niður störf, fellur niður.