Réðust á mann sem góndi á þær

mbl.is/Hjörtur

Uppúr klukkan átta á laugardagsmorgun réðust tvær konur um tvítugt inn á 40 ára gamlan mann í fjölbýlishúsi á Selfossi. Ástæðan var sú að konurnar töldu hann vera að góna á þær í tíma og ótíma. Upphófst rifrildi og hávaði. Konunum barst liðsauki er karlmaður, vinur þeirra, tók þátt í æsingnum sem lauk með því að önnur konan beit og hrinti manninum með þeim afleiðingum að hann rifbeinsbrotnaði.  

Konurnar og félagi þeirra voru handtekin og yfirheyrð. Málið er upplýst og verður sent til ákæruvalds að lokinni rannsókn, segir í frétt frá lögreglunni á Selfossi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert