Fulltrúar Besta flokksins, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar segja að grassláttur hafi verið aukinn og slætti breytt til þess að draga úr óþægindum vegna frjókorna.
Í bókun fulltrúanna segir að hirða hafi verið stórbætt og einnig hafi umgengni Reykvíkinga batnað. „Það er ekki síst fyrir þeirra tilstuðlan að borgin skartar sínu fegursta. Skáldið söng sumarið er tíminn og við teljum að sumarið sé komið - sláttur er farinn af stað og megi lykt af nýslegnu grasi gleðja sem flesta,“ segir í bókuninni sem þau Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Hjálmar Sveinsson, Kristín Soffía Jónsdóttir og Torfi Hjartarson lögðu fram á fundi ráðsins í dag.
Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þeirra Júlíusar Vífils Ingvarssonar og Mörtu Guðjónsdóttur, segir hins vegar að umhirða og grassláttur í borgarlandinu hafi verið verulega ábótavant á undanförnum árum. Sláttur hafi hafist of seint og grasið slegið of sjaldan.
„Nú eru farnar tvær til þrjár umferðir en áður var slegið allt að fimm sinnum yfir sumartímann. Þá er það áhyggjuefni að úthverfin hafa verið vanrækt þegar kemur að almennri umhirðu. Nú er gert ráð fyrir óslegnum svæðum í borginni, til dæmis meðfram stórum götum og opnum svæðum, svo sem Hringbraut og við Gylfaflöt í Grafarvogi, til að auka líffræðilegan fjölbreytaleika að því að sagt er.
Við gerum athugasemdir við þessa breytingu og höfum miklar efasemdir um þessa stefnu og áhrif hennar á yfirbragð og ásýnd borgarlandsins. Með þessari nýbreytni er í raun verið að fækka þeim svæðum sem borgin hirðir og það er þjónustuskerðing,“ segir í bókun þeirra.