Samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR um fylgi stjórnmálaflokka fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík mælist Sjálfstæðisflokkur með 21,1%. Yrðu þetta niðurstöður kosninganna myndi flokkurinn fá fjóra borgarfulltrúa.
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist ekki aðeins vera óánægður með niðurstöður könnunarinnar heldur vilji hann sjá flokk sinn gera mun betur á kjördag.
„Við erum með mjög góða stefnu sem á mikið erindi við borgarbúa,“ segir Halldór en að hans mati hefur kosningabaráttan einkennst af einhverju allt öðru en stefnumálum stjórnmálaflokka og málefnalegum umræðum. „Þegar við setjum fram okkar stefnumál þá höfum við nær enga til þess að ræða þau við því það er engin umræða um málefnin. Það er bara eitthvað allt annað uppi.“
Segir hann Sjálfstæðisflokkinn hafa að undanförnu unnið hörðum höndum við að kynna áherslur sínar fyrir kjósendum í Reykjavík og að stefna flokksins taki utan um bætta þjónustu við borgarbúa með auknu valfrelsi. „Við leggjum áherslu á bættan rekstur og lækkanir skatta og gjalda á borgarbúa. Þetta eru atriði sem skipta miklu máli og eru aðrir flokkar ekki að boða þetta.“
Spurður hvað gæti orsakað þessa fylgismælingu Sjálfstæðisflokksins í könnun MMR bendir Halldór á að mörg hitamál hafi að undanförnu brunnið á borgarbúum. Nefnir hann t.a.m. þjónustukönnun Capacent sem tók til sextán stærstu sveitarfélaga landsins en þar fékk Reykjavíkurborg falleinkunn.
„Svo vilja 72% Reykvíkinga að Reykjavíkurflugvöllur sé áfram í Vatnsmýrinni en fólk virðist láta eitthvað annað ráða í skoðanakönnunum,“ segir Halldór.
Samkvæmt könnun MMR þá mældist fylgi flokkanna sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík eftirfarandi: Samfylking 29,5%, Björt framtíð 24%, Sjálfstæðisflokkur 21,1%, Vinstri-græn 9%, Píratar 8,2%, Framsóknarflokkur og flugvallarvinir 5,3%, Dögun 2,6% og Alþýðufylkingin 0,2%.