Hægt að ráðstafa séreignarsparnaði

Sigurður Bogi Sævarsson

Búið er að opna fyrir ráðstöfun séreignasparnaðar á vef ríkisskattstjóra, leidretting.is. Þar er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði  í þrjú ár til greiðslu inn á lán sem er(u) vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota. 

Kynningarmyndband þar sem útskýrt verður hvernig eigi að sækja um verður sett inn bráðlega en að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar, ríkisskattstjóra,  er ör­lítið flókn­ara að sækja um nýtingu séreignasparnaðar held­ur en um­sókn um leiðrétt­ingu fast­eignalána því um­sækj­andi þarf að gera meira en þegar sótt er um leiðrétt­ingu.

Hægt er að fara inn á leidretting.is hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert