Gáfu 146 bangsa í sjúkrabíla

Gefnir voru 146 bangsar.
Gefnir voru 146 bangsar. Af heimasíðu Slökkviliðs Akureyrar.

Fulltrúar og svæðisstjóri Lionsklúbba á svæðinu frá Siglufirði til Þórshafnar afhentu í gær 146 bangsa til afnota í sjúkrabílum.

Ákveðið var að gefa bangsana eftir að fregnir bárust af því að Rauði Kross Íslands sæi sér ekki fært að kaupa bangsa til að hafa í sjúkrabílum, en þar hafa þeir verið gefnir börnum sem þurfa að þjónustu sjúkrabílanna að halda. 

Lions klúbbarnir kaupa bangsana frá Plastiðjuni Bjarg-Iðjulundur en það er verndaður vinnustaður. Í þetta skiptið voru gefnir 146 bangsar og munu birgðirnar duga í um eitt ár á þessu svæði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert