„Við Björn Blöndal, oddviti Bjartrar framtíðar, höfum ákveðið að hittast í dag og stíga næstu skref í sameiningu,“ sagði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, í aukafréttatíma Ríkisútvarpsins vegna kosninganna sem hófst kl. 12.
Rætt var við Dag og Halldór Halldórsson, oddvita Sjálfstæðisflokksins. Halldór sagði í samtali við mbl.is í morgun að hann teldi boltinn væri hjá öllum flokkunum sem hefðu fengið fulltrúa í borgarstjórn.
Samfylkingin er stærsti flokkurinn í borgarstjórn Reykjavíkur með fimm borgarfulltrúa og 31,9% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra borgarfulltrúa, eða 25,7% fylgi.Björt framtíð er með tvo fulltrúa og 15,6% atkvæða,
Framsókn með tvo fulltrúa og 10,7% atkvæða, Vinstri græn með einn fulltrúa og 8,3% atkvæða og að lokum Píratar með einn fulltrúa og 5,9% atkvæða. Hvorki Dögun né Alþýðufylkingin fengu kjörinn fulltrúa í borgarstjórn.
mbl.is hefur ítrekað reynt að ná í Dag B. Eggertsson og S. Björn Blöndal í morgun án árangurs.