Soffía Theódóra Tryggvadóttir, ritstjóri veftímaritsins Nordic Style, segir að sér hafi verið brugðið þegar hún frétti að bandaríska stórfyrirtækið Time Inc. hefði hótað tímaritinu málsókn nema Nordic Style gerði breytingu á merki fyrirtækisins - en það þótti of líkt merki blaðsins In Style, sem Time á og gefur út.
Fjallað er um málið á danska fréttavefnum BT undir yfirskriftinni „Davíð á móti Golíat“.
Time fer fram á margar milljónir dala í bætur verði ekkert að gert. Merki Nordic Style er °N Style og þykir það of líkt InStyle.
Soffía segir að sér hafi verið verulega brugðið þegar hún sá bréfið frá Time Inc. Hún bendir á að Nordic Style sé gefið út ókeypis á netinu og ljóst sé að fyrirtækið hafi enga burði til þess að berjast við bandaríska fyrirtækið í réttarsal.
Eina lausnin er að breyta merkinu til að komast hjá málsókn.
„Það er allra athygli vert að litið sér á lítið, sjálfstætt og ókeypis netímarit á Norðurlöndunum sem stóra ógn gagnvart stóru tímariti í Bandaríkjunum,“ segir Soffía í viðtalinu.