Stórhætta getur skapast ferðamenn hlaupa út á vegi til þess að taka myndir að sögn atvinnubílstjóra. Hann segir slysahættuna vera gríðarlega meðfram Suðurströndinni þar sem snögglega getur þurft að beygja yfir á öfuga akrein til að forðast ákeyrslu.
„Menn stoppa alls staðar úti á vegum með hurðarnar opnar til þess að fara út og taka mynd. Ég er fljótari að keyra í hálkunni á veturna heldur en á sumrin,“ segir Erling Valur, atvinnubílstjóri.
Hann segir vegina vera mjóa og að hættan sé vís þegar tveir bílar mætast í stöðunni. Sérstaklega þegar blindhæðir eru annars vegar. „Þetta er bara hugsunarleysi hjá þeim. Við búum í stórkostlegu landi og ég skil þá vel að vilja taka mynd en þetta gengur ekki,“ segir hann. „Undantekningarlaust eru ferðamenn úti á brúnni hjá Jökulsárlóni að taka myndir.“
Erling telur að vandann mætti að einhverju leyti leysa ef bílaleigur myndu einfaldlega vara ferðamenn við hættunni.