„Það verður seint sagt um Geir ræfilinn Haarde að hann hafi verið farsæll stjórnmálamaður,“ skrifaði Björn Valur Gíslason, fyrrverandi þingmaður, á bloggsíðu sína fyrr í kvöld og sagði að í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis væri allt það sem hann telur sér og sínum til ágætis dæmi um vond stjórnmál.
Björn Valur vísar í ræðu Aldo Musacchio, prófessors við Harvard Business School, á morgunverðarfundi Norsk-íslenska viðskiptaráðsins á Hilton Nordica Hótel í morgun þar sem hann sagði kjörið að nýta þá reynslu og þekkingu sem Íslendingar hafa öðlast á sviði fjármála eftir hrun bankanna haustið 2008 til að opna landið fyrir erlendum fjárfestum og gera það að alþjóðlegri fjármálamiðstöð.
Í tilefni þess rifjar Björn Valur upp ummæli Halldórs Ásgrímssonar, þáverandi forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, á viðskiptaþingi í ársbyrjun 2005 þar sem hann sagðist eiga sér þann draum að í framtíðinni verði Ísland þekkt um víða veröld sem alþjóðleg fjármálamiðstöð.
Draum Halldórs segir hann vera sína eigin martröð og segir loks: „Ég hef trú á því að ef þessi útlendi prófessor vissi hvað jarðvegurinn á Íslandi er frjór fyrir allskonar vitleysu þá hefði hann aldrei látið þetta út úr sér.“