Gæta þarf að böndum í blöðrum

mynd/bb.is

Neytendastofa biður fólk um að gæta vel að böndum í blöðrum sem börnum eru oft gefnar á þjóðhátíðardaginn. 

„Út um allan bæ um allt land má víðast hvar sjá blöðrur af ýmsum toga og eru álblöðrur þar einna mest áberandi. Á þær eru gjarnan sett gjafabönd sem stundum eru mjög sterk og næstum óslítanleg, jafnvel fyrir fullorðna. Blöðrurnar eru síðan afhentar börnum, oft eru þær bundnar við barnvagna eða úlnliði barna. Þetta getur skapað hættu fyrir ung börn, sér í lagi ef þau eru ekki undir stöðugu eftirliti fullorðinna. 

Um leið má benda á að blöðrur, líkt og önnur leikföng, sem markaðssettar eru á Íslandi eiga að vera CE merktar og uppfylla ákvæði staðla og reglna sem um þær gilda. 

Forráðamönnum barna er bent á að blöðrur ætti alls ekki binda við vöggu, rúm eða handleggi barna eða þar sem börn eru án stöðugs eftirlits,“ segir á vef Neytendastofu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert