Íslendingar eru töluvert duglegri að borða spínat í dag en þeir voru fyrir 10 árum en innflutningur á spínati hefur tæplega fimmfaldast á tímabilinu. Árið 2003 voru ekki nema tæp 25 tonn flutt inn af spínati en sú tala fór upp í 114 tonn á síðasta ári. Aukninguna má rekja til aukinna vinsælda boost-drykkja og hollari lífsstíls landsmanna að sögn innflytjanda.
Hjá gróðrarstöðinni Lambhaga eru seld um þrjú tonn af heimaræktuðu spínati á mánuði. Íslenskir grænmetisbændur eru langt frá því að anna eftirspurn.