Óperan Ragnheiður var sigurvegari Grímunnar - íslensku sviðslistaverðlaunanna sem veitt voru í 12. skiptið í Borgarleikhúsinu í kvöld. Ragnheiður var valin sýning ársins auk þess sem hún var verðlaunuð fyrir bestu tónlist og besta söngvara. Kristbjörg Kjeld hlaut Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi.
Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar hlaut eins og Ragneheiður þrenn verðlaun, fyrir leikstjóra, leikmynd og búninga.
Leikrit ársins var valið Stóru börnin í sviðsetningu Lab Loka og leikari ársins og leikkona í aðalhlutverki komu úr Eldrauninni í sviðsetningu Þjóðleikhússins. Leikari ársins og leikkona í aukahlutverki komu úr Furðulegu háttalagi hunds um nótt í sviðsetningu Borgarleikhússins og Óskateinum í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Hér að neðan má sjá öll verðlaun kvöldsins:
Sýning ársins 2014
Ragnheiður
eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson
í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Leikrit ársins 2014
Stóru börnin
eftir Lilju Sigurðardóttur
í sviðsetningu Lab Loka
Leikstjóri ársins 2014
Egill Heiðar Anton Pálsson
fyrir Gullna hliðið
í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Leikari ársins 2014 í aðalhlutverki
Hilmir Snær Guðnason
fyrir Eldraunina
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikkona ársins 2014 í aðalhlutverki
Margrét Vilhjálmsdóttir
fyrir Eldraunina
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikari ársins 2014 í aukahlutverki
Bergur Þór Ingólfsson
fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikkona ársins 2014 í aukahlutverki
Nanna Kristín Magnúsdóttir
fyrir Óskasteina
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikmynd ársins 2014
Egill Ingibergsson
fyrir Gullna hliðið
í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Búningar ársins 2014
Helga Mjöll Oddsdóttir
fyrir Gullna hliðið
í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Lýsing ársins 2014
Björn Bergsteinn Guðmundsson og Petr Hloušek
fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Tónlist ársins 2014
Gunnar Þórðarson
fyrir Ragnheiði
í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Hljóðmynd ársins 2014
Vala Gestsdóttir og Kristinn Gauti Einarsson
fyrir Litla prinsinn
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Söngvari ársins 2014
Elmar Gilbertsson
fyrir Ragnheiði
í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Dansari ársins 2014
Brian Gerke
fyrir F A R A N G U R
í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Danshöfundur ársins 2014
Valgerður Rúnarsdóttir
fyrir F A R A N G U R
í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Útvarpsverk ársins 2014
Söngur hrafnanna
eftir Árna Kristjánsson
Leikstjórn Viðar Eggertsson
Framleiðandi Útvarpsleikhúsið á RÚV
Sproti ársins 2014
Tyrfingur Tyrfingsson – leikskáld
fyrir Bláskjá
í sviðsetningu Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins
Barnasýning ársins 2014
Hamlet litli
eftir Berg Þór Ingólfsson
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands 2014
Kristbjörg Kjeld
Eldraunin eftir Arthur Miller í leikstjórn Stefans Metz, í sviðssetningu Þjóðleikhússins, fékk flestar tilnefningar eða ellefu talsins.
Næstflestar tilnefningar, eða 10, hlaut óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson í leikstjórn Stefáns Baldurssonar og í sviðsetningu Íslensku óperunnar.
Sýningarnar Furðulegt háttalag hunds um nótt eftir Simon Stephens í leikstjórn Hilmars Jónssonar, í sviðsetningu Borgarleikhússins, og Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar, í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar, hlutu hvor um sig sjö tilnefningar.
Um sjötíu verk komu til greina til Grímuverðlauna, þar af 7 útvarpsverk, 10 barnaleikhúsverk, 18 dansverk og 40 sviðsverk.