Ummæli Ingibjargar fráleit

Ingibjörg Pálmadóttir ásamst Jóni Ásgeiri Jóhannessyni.
Ingibjörg Pálmadóttir ásamst Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. mbl.is/Sverrir

Bjarni Ólafsson, ritstjóri Viðskiptablaðsins, segir fráleitt að gefa í skyn að blaðið gangi út frá því að Ingibjörg Pálmadóttir sé „viljalaust verkfæri“ eiginmanns hennar, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Ingibjörg gagnrýndi Viðskiptablaðið fyrir að hafa samband við Jón Ásgeir þegar kemur að hennar eigin viðskiptum.

Málið varðar frétt sem Viðskiptablaðið skrifaði um fyrirhuguð fasteignakaup Ingibjargar, þ.e að hún hefði hug á að kaupa hluta af fasteigninni við Hverfisgötu 6 í Reykjavík.

Í áréttingu sem Bjarni skrifar á vef blaðsins, segir að í fréttinni hafi ekkert gefið til kynna að eiginmaður hennar ætti hlut að máli.

Ingi­björg birt­i pist­il á vef Kvenna­blaðsins þar sem hún gagn­rýn­ir að „ís­lensk­ir fjöl­miðlakarl­menn“ hringi í Jón Ásgeir en ekki hana þegar kem­ur að henn­ar eig­in viðskipt­um.

Hún seg­ist ekki vera hliðarsjálf eig­in­manns síns. Hún hafi verið alin upp í Hag­kaup af föður sín­um, versl­un­ar­mann­in­um, og snemma farið sjálf í eig­in rekst­ur. „Ég varð ekki að vilja­lausu verk­færi þegar ég gifti mig tæp­lega fimm­tug,“ skrifaði Ingibjörg.

Bjarni segir að ástæða þess blaðamaður hafði fyrst samband við Jón Ásgeir sé einföld. Blaðinu hafði borist ábending þess efnis að Jón Ásgeir væri að kaupa eign þar sem ríkissaksóknari væri til húsa. Jafnframt fylgdi ábendingunni að saksóknari vildi ekki vera leiguliði Jóns Ásgeirs og væri þegar hafin vinna hjá embættinu að finna nýjan samastað.

„Því var haft samband við Jón í tölvupósti. Í svari sínu neitaði Jón því að hann hyggði á slík kaup. Hann svaraði svo ekki pósti þar sem hann var spurður að því hvort félög eða einstaklingar honum tengdir vildu kaupa fasteignina við Hverfisgötu 6.

Blaðamaður fékk svo þær upplýsingar sem hann þurfti með öðrum leiðum og komst því að því að Ingibjörg væri sú sem áhuga hefði á eigninni, en ekki eiginmaður hennar, enda snerist fréttin um það. Reynt var að ná í Ingibjörgu við vinnslu fréttarinnar, en það tókst ekki.

Það er því fráleitt að gefa í skyn, eins og Ingibjörg gerir, að Viðskiptablaðið gangi út frá því að hún sé „<a href="http://kvennabladid.is/2014/06/19/i-tilefni-kvennadagsins-19-juni-2014/">viljalaust verkfæri</a>“ eiginmanns síns,“ skrifar Bjarni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert