Farþegaflugvél þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli um helgina, þar sem farþegi um borð í henni veiktist. Vélin var á leiðinni frá Los Angeles til London þegar farþeginn kenndi sér meins.
Sjúkrabifreið og lögregla tóku á móti vélinni og var farþeginn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar, segir í frétt frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.