Tilkynnt var til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi um ungan dreng með vasahníf en þarna var skáti á ferð sem var ekkert að skemma.
Einn gisti fangageymslu lögreglu í nótt en það var útigangsmaður sem óskaði eftir næturstað.
Tilkynnt var um að framrúða bifreiðar hefði verið skemmd. Einnig var tilkynnt seinna um rúðubrot í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi.
Tilkynnt var um mann á þaki Laugardalshallar en starfsmenn hallarinnar sáu um málið. Farsíma var stolið af ferðmanni.