Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir jeppabifreið af gerðinni Nissan Patrol sem stolið var úr bílastæðahúsi í Hafnarfirði í færslu á Facebook síðu sinni í dag. Um er að ræða gráan jeppa með númerið UA-011, en lögreglan biður þá sem verða varir við ferðir bílsins um að hafa samband til þess að hann komist í réttar hendur sem fyrst.