Fjárfestar hafa keypt stærstan hluta húseignarinnar Rauðarárstígs 23 í Reykjavík en á syðri hluta lóðarinnar er heimilt að byggja 3-4 hæða hús með bílakjallara.
Nokkrir fjárfestar sýndu því áhuga að kaupa eignina sem var í eigu Arion banka og herma heimildir Morgunblaðsins að annaðhvort hafi þeir viljað reisa hótel eða íbúðir á byggingarreitnum. Ekki fékkst uppgefið hvað kaupendurnir hafa í hyggju með lóðina.
Að undanförnu hafa fjárfestar gert tilboð í fjölda íbúða í nýjum fjölbýlishúsum og horfa þeir til hækkandi leigu- og fasteignaverðs, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.