Mál Harriet Cardew, tíu ára stúlku sem neitað var um vegabréf þar sem nafn hennar hefur ekki verið samþykkt af mannanafnanefnd, hefur nú ratað í erlenda fjölmiðla. Guardian fjallar um málið.
Í umfjöllun blaðsins kemur fram að á Íslandi geti stúlkur til að mynda heitið Arney, Ásfríður, Bebba, Brá, Obba, Úranía eða Sigurfljóð. Þær mega samt ekki heita Harriet, líkt og stúlkan sem vill nú endurnýja íslenska vegabréfið sitt svo hún komist í frí til Frakklands ásamt fjölskyldu sinni.
Atburðarrás málsins er rakin í fréttinni, en Vísir greindi fyrst frá málinu. Foreldrar stúlkunnar hafa kært ákvörðun Þjóðskrár Íslands, að neita Harriet um vegabréf, til innanríkisráðuneytisins. Samkvæmt frétt Vísis hefur Harriet nú fengið neyðarvegabréf frá breska sendiráðinu svo hún komist í ferðalagið ásamt fjölskyldu sinni.
Samkvæmt þjóðskrá eru lögin skýr, og ekki er heimilt að gefa út vegabréf til aðila sem ekki hefur verið gefið nafn í þjóðskrá. Er það breytt verklag frá því sem áður var, því Harriet hefur áður fengið útgefið vegabréf, sem rann út í apríl á þessu ári.
Krístín Cardew, móðir Harriet, sagði í samtali við mbl.is í dag að það sé þetta breytta verklag sem þau kæra til innanríkisráðuneytisins. Telja þau að breyting á framkvæmdinni krefjist breytingar á lögunum að reglugerðin sem vísað er til í synjuninni hafi ekki nægilega lagastoð til þess að hægt sé að byggja synjun á henni.
Fréttir mbl.is um málið:
Vísir greindi fyrst frá málinu.