Starfsfólk Fiskistofu mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnarinnar, sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kunngjörði fyrirvaralaust sl. föstudag, um flutning stofnunarinnar til Akureyrar. Enginn starfsmanna hefur lýst því yfir að hann hyggist flytja búferlum og fylgja stofnuninni norður.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu, sem starfsmennirnir hafa sent á fjölmiðla. Þar segir ennfremur, að ljóst sé að ákvörðun af þessu tagi hefur alvarlegar afleiðingar fyrir afkomu fjölskyldna a.m.k. 62 starfsmanna, þar sem eru makar, börn og í ýmsum tilvikum aðrir nákomnir ættingjar. Því er um að ræða bein áhrif á lífsviðurværi mörg hundruð manns.
„Óhætt er að gagnrýna vinnubrögð stjórnvalda við þá aðferðafræði leifturárásar sem beitt var við kynningu ákvörðunarinnar, sem birtist starfsmönnum eins og þruma úr heiðskíru lofti. Í kjölfarið upplifa margir í senn vanlíðan og lítilsvirðingu við störf sín og fagþekkingu.
Engin rök eru enn fram komin sem hníga til þess að ná megi fram fjárhagslegum ávinningi eða hagræðingu með flutningi stofnunarinnar. Þvert á móti má búast við að kostnaður við flutningana geti verið mun meiri en látið er í veðri vaka. Sá mannauður sem stofnunin býr yfir virðist jafnframt einskis metinn.
Á starfsmannafundi í morgun kom fram að enginn starfsmanna hefur lýst því yfir að hann hyggist flytjast búferlum og fylgja stofnuninni norður. Því blasir við að vonir ráðamanna þar um eru þegar að engu orðnar og ljóst að þeir þurfa að horfast í augu við það.
Komið hefur fram að verulegur vafi kunni leika á því hvort flutningur stofnunarinnar megi verða, án sérstakar heimildar í lögum. Þess er að vænta að ekki muni standa á starfsmönnum stofnunarinnar að verja sinn rétt í þeim efnum.
Forsætisráðherra hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að til skoðunar sé að flytja fleiri stofnanir út á land. Má af því ráða að starfsöryggi fjölda annarra starfsmanna opinberra stofnana sé nú þegar að engu orðið, heldur háð geðþóttaákvörðunum valdamanna, sem minna fremur á vinnubrögð í alræðisríkjum en það sem við væri að búast í nútímalegu, lýðræðislegu samfélagi,“ segir í yfirlýsingunni.