Þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur óskað eftir fundi í fjárlaganefnd Alþingis til þess að ræða fyrirhugaðan flutning á höfuðstöðvum Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar. Bjarkey Gunnarsdóttir sendi bréf þess efnis til Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar, í dag.
„Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var starfsfólki Fiskistofu nýlega tilkynnt án nokkurrar viðvörunar að störf þeirra yrðu flutt frá Hafnarfirði til Akureyrar. Þótt markmiðið með slíkum flutningi sé jákvætt og mikilvægt að því leyti að rétt er að sanngjarnt hlutfall opinberra starfa verði utan höfuðborgarsvæðisins, þá er einnig ljóst að framkvæmd fyrirhugaðs flutnings, samráð við starfsmenn og fleira, er stórlega ábótavant,“ segir í bréfinu.
Bjarkey segir að efna hefði átt strax í byrjun til náins samráðs við starfsfólks og sýna þar með fagmennsku og vandaða stjórnsýslu. „Einnig virðist vera uppi lögfræðilegt álitamál um lögmæti flutningsins, auk þess sem fjárheimild fyrir kostnaðinum vegna flutningsins, sem talinn er hlaupa á hundruðum milljóna, hefur ekki fengist hjá Alþingi í neinni mynd. Ég tel því fulla þörf á því að við fundum í fjárlaganefnd um aðkomu Alþingis þar sem ítrekað hefur verið að flutningurinn muni eiga sér stað og fleiri slíkir séu væntanlegir.“