Hluta Sæbrautar verður lokað þegar hjólreiðakeppnin Alvogegn Midnight Time Trial fer fram í kvöld. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, setur keppnina kl. 19 í kvöld við Hörpu.
Um 100 bestu hjólreiðamenn landsins munu taka þátt auk erlendra keppenda.
Sæbraut verður lokuð fyrir umferð á meðan keppnin stendur yfir, þ.e. frá Hörpu að gatnamótunum við Laugarnesveg, en keppninni á að ljúka um kl. 21 í kvöld.
Alvogen Midnight Time Trial er tileinkað réttindum barna og renna þátttökugjöld óskert til neyðarsöfnunar UNICEF til hjálpar börnum í Suður-Súdan. Að lokinni keppni munu hefjast styrktartónleikar Alvogen og UNICEF í Hörpu.
Nánari upplýsingar um keppnina.