Skola þarf flúor af matjurtum

Grænkál.
Grænkál.

Matvælastofnun fylgist með vöktun á mengun frá álveri Alcoa í Reyðarfirði með tilliti til öryggis matvæla. 

Nú hafa hækkuð gildi mælst í grasi þriðja sumarið í röð. Sumarið 2013 voru tekin sýni af grasi, rabarbara, kartöflum, grænkáli og berjalyngi og má sá niðurstöður þeirra mælinga í skýrslu hér.

Í frétt á vef Matvælastofnunar segir að hvað varðar matjurtir þá er styrkur í ávöxtum og rótum ekki hár þó flúor sé hátt í laufum sömu plantna. Flúorið situr á yfirborði plantna og því bendir Matvælastofnun fólki á að það getur losnað við stóran hluta af flúori af yfirborði matjurta eins og salats og berja með því að skola vel með vatni fyrir neyslu.

Varðandi afurðir dýra sem alin eru á svæðinu stafar neytendum engin hætta af neyslu þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert